Tuesday, 5 February 2013

Nýtt ár

Eins og vanalega hef ég ekki hugmynd hvar ég á að byrja. Eftir 2 daga er ég hálfnuð með árið sem líður allt of hratt núna .. en allavega á afsmælisdaginn minn vakti fjölskyldan mig klukkan 00:01 með afmælissöng og gaf mér rosa flottar gjafir. Eftir það fór ég aftur að sofa og vaknaði svo í svaka morgunmatarhlaðborð, fór svo í ítölskuskólann og þar forum við öll á kaffihús og kennarinn splæsti. Eftir það fór ég í minn skóla og þá sungu allir fyrir mig. Þegar ég kom heim var bróðir minn búinn að elda roosa gott fyrir okkur og við vorum í 2 tíma að borða. Eftir matinn var opnað kampavín og borðað köku sem mamma og systir mín bökuðu. Um kvöldið bauð bekkurinn mér út að borða og eftir það fórum við í bæinn og tókum rúnt með hestvagningum. Á laugardeginum fór ég svo með fjölskyldunni að borða á XXXL veitingastað og fengum við stærsta hamborgara og bjor sem ég hef séð.



Jólin voru aaallt öðruvísi en heima og þau eru ekki næstum því eins hátíðleg og á Íslandi. Það er ekkert skreytt hérna nema í miðbænum og ég komst ekki í neitt jólaskap. Klukkan 6 á aðfangadag var ég útá videoleigu með systur minni og við borðuðum bara þegar allir voru orðnir svangir. Í forrétt var kolkrabbi og pasta, aðalrétt rosebeeff og sem betur fer tiramisu í eftirrétt. Ég vissi ekki hvort ég ætti að fara að gráta eða hlægja þegar ég sá jolatréið okkar en það er með því ljotasta sem ég hef séð, get ekki sett mynd af því útaf fjolskyldan er mjög dugleg að skoda bloggid mitt. Annan í jólum vorum við bara á náttfötunum allann daginn og gerðum ekki neitt og borðuðum svo grillaða samloku í kvöldmat .. Jólin voru klárlega lang erfiðasti tíminn hérna allavega sem komið er og ég fékk í fyrsta sinn alveg mjöög mikla heimþrá sem var samt sem betur fer mjög stutt.
Á milli jóla og nýárs fórum við nokkrar vinkonur uppí íbúðina sem við eigum uppí fjalli og fórum 2 daga í röð á snjósleða sem er stóórhættulegt! Ef maður nær ekki að bremsa útaf klaka sem gerist frekar oft endar maður bara einhverstaðar rúllandi niður brekku í steinum og trjám. Eftir þessa ferð var ég öll bækluð og illt allsstaðar og tókum við heilann dag i leti til ad jafna okkur eftir þessa ferð.





Áramótin voru heldur betur skrautleg. Host mamma og pabbi voru í Budapest um áramótin með systur mömmu og manninum hennar(Pétri Pan). Klukkan 12 á hádegi fórum ég og systir mín til frænda okkar, sem eru synir Pétur Pan. Á slaginu 12 á hádegi byrjuðum við að borða og borðuðum stanslaust til 12 um kvöldið. 12 tímar af mat, 26 réttir og alltaf 2-3 vín með hverjum rétti. Það vill þannig til að besti vinur Pan bræðra(francesco) á pabba sem býr til vín þannig þegar hann mætir á svæðið byrjar partýið. Hann kom með heilu kassana inn af víni og öðru áfengi. Þegar fólk var orðið aðeins í glasi var dansað gangnamstyle og Macarena á milli allra rétta. Fyrir fólkið hérna er vín ekki áfengi til að verða fullur heldur hluti af menningunni og Francesco valdi samviskusamlega vínin sem honum fannst passa best með hverjum rétti og var þetta allt útpælt. Svo fengum að smakka vín frá 1945 eda 53 minnir mig. Lyktin af því þegar við opnuðum það var svona eins og þegar maður labbar inná klósett eftir að karlmaður er búinn að gera feitt. Svo þarf það að standa í 20-30 mín og þá er lyktin eins og af nýju víni. Ég fann mjög lítin mun á þessu gamla víni og hinum en mér var sagt að ein flaska af þessu kostar um 3000 evrur sem er um hálf milljón íslenskar og þeim dettur ekki í hug að selja þetta. Þau eru með eina reglu í sambandi við áfengi og það er að ekki drekka neitt annað en vín fyrir myrkur. Eftir 5 þegar var orðið alveg svart úti voru opnaðir kassarnir með hinu áfenginu og hefur hann Francesco svo bilaðann áhuga á þessu öllu og let okkur lykta af hverju einasta vini thannig ég er ennþá með vín og áfengislyktina uppí heila eftir þetta kvöld. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum af því að þau sprengja bara ekki neitt!:( Þá hringdi ég bara heim í mömmu og pabba og fékk að horfa á flugeldageðveikina á Íslandi. Svo var haldið niðrí bæ en ég og systir mín vorum með svo mikinn hausverk eftir alla þessa vínsmökkun þannig við fórum bara heim um 4 og horfðum á mynd í kósý.

Nýtt ár byrjaði svo skemmtilega að við fórum uppí fjall á snjósleða og vorum búnar að vera þar í 2 tíma þegar við skautuðum á eitthvað svell sem var á miðri braut og enduðum einhverstaðar útí trjám og steinum og brutum sleðann, ég tognaði í hendinni og var nokkuð mörgum marblettum ríkari. Hvað gerir maður svo í miðri brekku í ölpunum þegar snjósleðinn er brotinn og svona 3 kílómetrar að labba uppí næstu lyftu til að komast niður.. Jú það er ekkert annað í stöðunni en að labba niður. Það tók okkur góða 2 og hálfann tíma að komast alveg niður en sem betur fer var rosa gott veður þannig þetta var bara fínt 


Svellið sem við runnum á ...
Greyið sleðinn okkar :(
Reyndum að húkka far en það gekk ekki alveg eins og var áætlað


Fjölskyldan er búin að vera dugleg að fara á skíði og bretti núna eftir áramót þannig ég er loksins búin að læra á bretti. Ég held ég geti ekki talið skíðasvæðin sem eru hérna í kringum Bolzano en við erum alltaf bara 10-50 mín að keyra á hvert skíðasvæði sem er algjör lúxus.

Um helgina fór ég til Milano til Auðar sem er skiptinemi þar. Við skelltum okkur á tónleika með David guetta og félögum á föstudagskvöldinu sem var klikkun. Á laugardagsmorguninn píndum við okkur í að vakna snemma og héldum niður í bæ. Þar fórum við á mac donalds, skoðuðum kirkjuna og versluðum og með einhverjum óskiljanlegum hætti minnkaði peningabuddan hættulega mikið. Á sunnudeginum var svo verslað meira og við fórum líka upp í kirkjuna þar sem maður getur séð yfir alla Milano. Heimferðin var nú ekki alveg eins skemmtileg og stórborg tískunnar en allavega þá fórum við á lestarstöðina og lentum í smá stressi þar útaf ég geymdi töskurnar þar yfir daginn og þeir tóku ekki við korti til að borga þær út þannig við þurftum að spretta aftur til baka og reyna að finna hraðbanka og hlaupa svo aftur og ná í töskurnar, hendast í að reyna að finna rétta lestarbraut og svo að sjálfstögðu var sætið mitt aftast í lestinni þannig við hlupum meðfram allri lestinni með alla verslunarpokana og ferðatöskuna og ég rétt náði henni 2 mín áður en hún átti að fara. í Verona skipti ég um lest og þurfti að bíða þar í 20 mín, á seinustu stundu var skipt um braut sem lestin átti að koma á úr 8 yfir í 14. Þegar ég var komin upp í lestina og 2 mín í að hún ætti að leggja af stað fattaði ég að ég hafði gleymt ferðartöskunni minni á braut 8! ég hljóp út og náði í ferðartöskuna og rétt náði lestinni sem næstum lokaði á mig. Þegar ég kom inn í lestina var hún YFIRFULL og ég þurfti að standa og sitja á gólfinu til skiptis í næstum 3 tíma útaf hún þurfti endilega að stoppa í miðjum göngum í klukkutíma. Þetta var ekki gaman því við hliðiná mér voru 3 ógeðslegir kallar sem snýttu sér til skiptis beint framan í mig eins og ítölum einum er lagið.

Jólagjöfin frá Sylvíu! held ég hafi sjaldan verið ánægðari með jólagjöf!
Þessa dagana er ég að reyna að læra Þýsku. Núna hugsa ég flest allt á ítölsku þannig heilinn minn hefur bara ekki pláss fyrir þýskuna en það er erfiðara en ég hélt að læra 2 tungumál í einu. Svo er ég reyndar líka að skrifa ritgerð á íslensku og þarf að skila riisa verkefni í spænsku í næstu viku og svo eru 2 munnleg próf í ensku í næstu og þarnæstu viku .. sem betur fer þarf ég ekki að fylgjast mikið með í latínu og grísku.
Sá þessa fínu mynd á facebookinu hjá Sölku en ég 
hef notað þetta daglega síðan ég kom til ítalíu

Núna sit ég á bókasafninu í háskólanum að mönsa harðfisk en mér sýnist félagar mínir á næstu borðum ekki alveg vera að meta lyktina eins vel og ég. Í næstu viku er ég svo að fara til Venice á carnivalið með Valeríu og nokkrum öðrum skiptinemum en þá verður langþráð vikufrí í skólanum. Ætla ekki að hafa þetta lengra.

Chus eða Auf wiedersehen eins og ég myndi segja á góðri þýsku.
Er svo heppin að eiga góða foreldra og afa og ömmu!

No comments:

Post a Comment